Kírópraktorstofa Hafnarfjarðar – KPH
Kírópraktor meðhöndlar háls skjólstæðings á Kírópraktorstofu Hafnarfjarðar í Firði

Kírópraktor í Hafnarfirði

Betri hreyfing.
Betra líf.

Með einstaklingsmiðaðri nálgun hjálpum við þér að ná þínum markmiðum, draga úr verkjum og bæta lífsgæði.

Þjónusta

Allar bókanir fara fram í gegnum Noona. Ertu ekki viss hvað hentar? Bókaðu frían símatíma.

Fyrsti Tími

Skráning, ítarleg skoðun og greining, fræðsla og fyrsta meðferð/æfingaáætlun.

Endurkoma

Hefur þú komið til okkar áður? Þá bókar þú endurkomu. Það þarf ekki að bóka fyrsta tíma aftur.

Börn

Meðferðir og mat fyrir börn og unglinga á öllum aldri. Leitast er við að gera skoðunina og æfingarnar skemmtilegar og áhugaverðar. Unnið er náið með foreldrum og veitt ráðgjöf um hreyfingu og stoðkerfi í vexti.

Meðganga

Sérhæfð þjónusta fyrir konur á meðgöngu og eftir fæðingu. Áhersla er lögð á að draga úr grindarbotns- og bakverkjum og leiðbeina um örugga hreyfingu á þessu mikilvæga tímabili.

Endurkoma eftir hlé

Fyrir þá sem hafa komið áður en ekki í "endurkomu" tímabili (t.d. lengra en 6 mánuðir liðnir). Endurmat á stöðu, skoðun og uppfærð meðferðaráætlun.

Símatími

Stutt spjall í síma þar sem stuttlega er farið yfir stöðuna og ráðlagt um næstu skref. Tilvalið fyrir þá sem eru óvissir hvort kírópraktík eigi við.

Máni Þór Valsson, kírópraktor hjá Kírópraktorstofu Hafnarfjarðar

Kírópraktor

Máni Þór Valsson

Ég útskrifaðist sem Doctor of Chiropractic frá Life University í Atlanta, Georgia. Námið er fimm ára doktorsnám sem veitir víðtæka þekkingu á starfsemi taugakerfisins, stoðkerfisins og þeirri meðferð sem styður við náttúrulega getu líkamans til að starfa sem best.

Mín reynsla hefur kennt mér að aðlaga meðferðina að hverjum einstaklingi, óháð aldri, heilsufari og markmiðum, hvort sem um er að ræða ungabarn, barn, barnshafandi konu, íþróttamann eða einstakling á efri árum.

Á Kírópraktorstofu Hafnarfjarðar er lögð áhersla á hlýlegt og traust umhverfi þar sem hver og einn fær persónulega þjónustu og meðferð sem er sniðin að hans þörfum og markmiðum. Markmið mitt er að hjálpa fólki að draga úr verkjum, bæta hreyfigetu og styðja við betri heilsu til lengri tíma.

Umsagnir

"Reynslan mín hjá Mána hefur verið frábær og gengið vonum framar. Virkilega góð og persónuleg þjónusta og umhverfið rólegt og þægilegt. Ég leitaði til Mána fyrir hálfu ári upphaflega vegna verkja og klemmu í háls sem var farið að hrjá mig í daglegum athöfnum. Hann hefur náð að losa um þá verki og klemmu til muna og líður mér mun betur í dag."

Telma

Samfélagsmiðlar

Fróðleikur, æfingar og innsýn í stofuna. Fylgdu okkur á

Algengar spurningar

Hvar er Kírópraktorstofa Hafnarfjarðar?

Stofan er á 2. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði, Fjarðargötu 13-15, 220 Hafnarfirði. Lyfta er á staðnum og nóg af bílastæðum við húsið.

Hvernig bóka ég tíma hjá kírópraktor?

Allar bókanir fara fram á Noona (noona.is/kph). Nýir skjólstæðingar bóka „Fyrsta tíma“. Ef þú hefur komið áður bókar þú „Endurkomu“, það þarf ekki að bóka fyrsta tíma aftur. Einnig er hægt að hringja í síma 571-6611 eða senda póst á kph@kph.is.

Hvað kostar tími hjá kírópraktor?

Fyrsti tími kostar 19.900 kr. og felur í sér skoðun, greiningu, fræðslu og fyrstu meðferð. Endurkoma kostar 6.900 kr., endurkoma eftir hlé 12.900 kr., tími fyrir börn 17.900 kr. og meðgöngutími 19.900 kr. Símatími er frír.

Meðhöndlar þú börn og barnshafandi konur?

Já. KPH býður upp á sérstaka tíma fyrir börn og unglinga á öllum aldri, unnið er náið með foreldrum. Einnig er boðið upp á sérhæfða þjónustu fyrir konur á meðgöngu og eftir fæðingu, með áherslu á grindar- og bakverki.

Hvernig veit ég hvort kírópraktík henti mér?

Ef þú ert óviss geturðu bókað frían símatíma. Þá er farið stuttlega yfir stöðuna og ráðlagt um næstu skref.

Hver er kírópraktorinn?

Máni Þór Valsson er Doctor of Chiropractic frá Life University í Atlanta, Georgíu, sem er fimm ára doktorsnám. Hann meðhöndlar fólk á öllum aldri, frá ungbörnum og íþróttafólki til eldri borgara.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu ráð um heilsu og hreyfingu, fréttir af stofunni og tilboð beint í pósthólfið.

Þú getur afskráð þig hvenær sem er með pósti á kph@kph.is. Við deilum netfanginu þínu aldrei með öðrum.